Skordal

Lífið og tilveran hjá Skordal

21.12.2008 22:42:19 / skordal

Jólakveðja

Kæru vinir nær og fjær!

 

Mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Takk fyrir allar yndislegu stundirnar á árinu sem er að líða

Sjáumst vonandi sem fyrst :)

 Jólaknús ykkar Skordal


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 00:01:43 / skordal

Hin síunga Skordal á afmæli í dag

Opið hús

að því tilefni verður pylsupartý í kvöld og prinsessukaka í eftirrétt

en gott væri að fá sms ef þið sjáið ykkur fært að mæta svona upp á kökustærðina 35 eða 50 manna ;)
:


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 18:00:04 / skordal

Andlaus


Ég var að lesa skrif mín hér og vá hvað þau eru búin að vera innihaldslítil allt þetta ár. Greinilegt að ég er andlaus og áhugalaus í bili alla vega.  Því ætla ég að hvíla mig um stund en stefni á að koma tvíefld til baka með haustinu/vetrinum 8)

Kæru lesendur þessa fámiðils

þangað til næst, gangið á guðs vegum

Skordal :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 16:12:40 / skordal

Sumarfríið á enda


Jæja þá er þetta sumarfrí á enda og dagleg rútína að byrja á nýju.
well, þó svo að ég sé búin að gera margt og hafa það geggjað gott þá verður nú bara gott að fara að vinna aftur, segi það ekki að ég hefði alveg verið til í að vera bara 50% vinnu fyrstu dagana ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 12:10:47 / skordal

Komin heim

Skordal er komin heim eftir geggjaða ferð
til Costa del sol




Stella gella
Stella gella


Já bjór er hollur og góður!

hvað er málið með þessa rigningu á landinu??

Ég vil sól, sól, sól ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 19:52:39 / skordal

Sumarfrí


Er ég komin í sumarfrí!

Öuh já 8)

Hafið það gott í fríinu kæru lesendur


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 19:55:34 / skordal

Sumarfrí


Hvað er að frétta?
Tja....

Skordal var í sumarfríi í síðustu viku og skellti sér í Grímsnesið í sumarbústað með "gamla" settinu og Katrínu prinsessu. Yndisleg vika sem leið bara aðeins of hratt.
En það styttist nú í frí aftur, ég fer í frí 10 Júlí og byrja aftur 7 ágúst
14 júlí ætla ég að skella mér til Costa De Sol í viku með Stellu vinkonu

Nokkrar myndir



ég, skotta og pabbi við Geysi


Katrín var alltaf til í að kíkja í pottinn


Katrín með ömmu í dýragarðinum


Við Geysi

Skordal kveður að sinni og vonar að sem flestir

gangi á guðs vegum :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 22:53:58 / skordal

Ísbjarnablús


Sorglegt að hann hafi verið drepinn!
Ísbjörninn var drepinn við Hraun í kvöld.<br /><em>mbl.is/Skapti</em>
...eða ekki,
því að eyða milljónum í að flytja hann í burt,
væri ekki nær að eyða peningnum í e-ð þarfara?

já maður spyr sig


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 22:33:04 / skordal

17. Júní


Gleðilegan 17. Júní kæra fólk

Eigum við e-ð að ræða blíðuna í 101 í dag?

...nei hélt ekki!!  ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 12:17:55 / skordal

Gömul albúm


Þessi mynd af Helga bró er í miklu uppáhaldi hjá mér,
hún er tekin að ég held hjá ömmu og afa í Vallholti

 

...Helgi minn hvaða bland ertu með í brúsanum?


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 16:56:41 / skordal

Góða helgi

Ekkert nýtt að frétta

...eða jú reyndar, Skordal ætlar að slaka á um helgina, ekki mikil plön, síðustu helgar hafa verið ansi mikið planaðar svo þetta verður ljúf og góð helgi

gangið á guðs vegum kæru lesendur :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 18:38:58 / skordal

Áfram Ísland


Ég elska Júróvísjon

Ísland lendir í 3 - 6 sæti
það er öruggt

Svo eftir keppni þá á að skella sér á NASA þar sem Palli frændi er DJ

Áfram Ísland og skál kæru landar ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 22:38:01 / skordal

Sumarið er tíminn þegar kvenfólk springur út!


Gott að viðra litla naflakútinn líka 




» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 03:39:42 / skordal

Það var...

 
Það var... geggjað gaman í N.Y.C.

Það var... verulega kósý að vera nokkra daga á Hilton hóteli og njóta lífisins

    Það var... ótrúlega gaman að skoða skólana, þeir eru mjög ólíkir þeim sem við höfum, t.d. er útisvæðið hjá þeim yfirleit ca. 30 fm² og á 5. hæð uppá þaki

    Það var... mjög gaman og fræðandi að fara með fleiri leikskólum frá Ísl. og kynnast nýju fólki og spjalla um leikskólaheiminn

    Það var... mjög mjög skemmtilegt að versla þarna, kostar jú bara allt krónu! og auðvitað var fyllt í 2 ferðatöskur og nýttur allur þá kg fjöldi sem mátti hafa með í flugi

    Það var... mikið stuð á Klambrafólkinu og mikið hlegið, vá hvað þetta er skemmtilegur og samrýndur hópur

    Það var... hinsvegar mjög erfitt að kveðja Ingu boss, hún var að hætta og varð eftir í nokkra daga í N.Y. ég á eftir að sakna hennar mjög

    Það var... YNDISLEGT að koma heim í ferska loftið, góða vatnið og síðast en ekki síst að sofna í sínu rúmi

    Það var... örlítið erfitt að bera allan farangurinn uppá 4. hæð. hehe :o

    Það var... skemmtilegt bréf sem beið mín heima, ég hafði sótt um tímabundin viðbótarlaun fyrir þróunarverkefni sem mig langar að gera og það var komið jákvætt svar um þá beiðni frá Reykjavíkurborg og meira að segja mun meiri upphæð en ég bjóst við ;)



» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 15:48:37 / skordal

N.Y.C. Here I come




Jessörí

N.Y.C. á morgun, ég er að pakka á fullu.
Hef aldrei farið í svona dekurferð áður þ.e. við sem förum á undan hópnum verðum á Hilton hoteli rétt við Times Square.
hér er linkurinn á hotelið

http://www1.hilton.com/en_US/hi/hotel/NYCNHHH-Hilton-New-York-New-York/index.do;jsessionid=22F4F6CF44E738F98611548DFB821EEC.etc61?brand_id=HI&brand_directory=/en/hi/&xch=184534470,3W5NUHJGU515ECSGBJBNUKQ


erum með svítu á 45. hæð, ekki slæmt það! :)

Kem aftur heim 6. maí

Endilega verið dugleg við kvitterí, nóg að segja hæ, hó! ;)

Skordal heimsborgari


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Myndasöfn
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 7 janúar